Alþýðufylkingin beitir sér fyrir endurreisn heilbrigðiskerfisins. Aukin félagsvæðing í hagkerfinu býr til svigrúm til að veita meira fé til heilbrigðismála. Skapa þarf aðstöðu til að öll heilbrigðisstarfsemi geti verið félagslega rekin eða farið fram á vegum hins opinbera, svo fjármunir nýtist betur og leitast við að ná samkomulagi við heilbrigðisstarfsfólk um það fyrirkomulag. Markmiðið verði að allir geti fengið þá heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa eftir því sem tækni og þekking leyfir, án endurgjalds og að sem mestu leyti í sínu heimahéraði. Heilsugæslan verði efld og bættri lýðheilsu gefið aukið vægi. Tannlæknaþjónusta lúti sömu reglum og önnur læknisþjónusta og lyfjaframleiðsla og lyfjaverslun verði hluti af opinberri heilbrigðisþjónustu.
Alþýðufylkingin beitir sér fyrir eflingu menntakerfisins. Skólakerfið á að vinna markvisst að persónulegum og félagslegum þroska íslenskra ungmenna í anda réttlætis og sanngirni. Lögð verði áhersla á jafnrétti til náms og símenntun við hæfi. Stefna í menntamálum skal miðast við að menntun sé hluti af lífsgæðum sem allir eiga rétt á og samfélagsleg verðmæti fremur en markaðsvara. Leitast skal við að miða nám við þarfir og hæfileika hvers einstaklings. Skólakerfið í landinu verði allt félagslega rekið og gjaldfrjálst.
Alþýðufylkingin beitir sér almennt fyrir auknu vægi hins félagslega í samfélaginu á kostnað markaðsvæðingar, sérstaklega á sviðum almannaþjónustu sem allir þurfa á að halda og umsjón með auðlindum, sem eiga að vera sameign þjóðarinnar. Nauðsynlegt er að losa samfélagið undan þeim vítahring kapítalismans sem gerir kröfu um sífellda stækkun hagkerfisins.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.