Miðflokkurinn gleypir Flokk fólksins

Sigmundur Davíð var ekki lengi að styrkja stöðu sína og bæta við 4 þingmönnum í sinn hóp.

Hann hreinlega gleypti Ingu Sæland og félaga í Flokki fólksins á 1.degi eftir kosningar.

Hefði ekki verið heiðarlegra að bindast kosningabandalagi fyrir kosningar ? Ég þekki fólk sem hefði alls ekki kosið flokkinn ef það hefði vitað þetta.

Ég hef oft á undanförnum vikum varað við flokkum sem hafa alls enga hugmyndafræði til að standa á.

Ég hef líka marg sagt að Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru hægri flokkar. Það hefur sést á því hvaðan Miðflokkurinn fékk fylgi sitt og allir vita hvaðan frambjóðendur Flokk fólksins eiga rætur að rekja.

Mbl hefur hreinlega hampað Miðflokknum frá fyrstu stundu.

Myndaniðurstaða fyrir sigmundur davíð cartoon

Sannleikurinn birtist alltaf fyrr eða síðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Kunnuglegt trikk, a la Bensi og Björt Framtíðyell

Hrossabrestur, 30.10.2017 kl. 17:44

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú hefur greinilega valkvæða heyrn frú Margrét. Hvorki Inga né Sigmundur hafa sagt að þau hafi bundist bandalagi, heldur rætt sameiginlega fleti í stefnum sínum rétt eins og stjornarandstöðuflokkarnir hafa verið að gera sín á milli og saman. Enginn hefur sagt þá vera að bindast bandalagi, þott það væri eðlilegra að álykta svo. Ég skil samt að þú hafir þennan misskilning ef þú lest bara fyrirsagnir skeiniblaðanna.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.10.2017 kl. 20:53

3 identicon

Orðrétt sagði Sigmundur:"Spurður hvers vegna Inga hefði komið með hon­um að Bessa­stöðum svaraði Sig­mund­ur: „Við vor­um að koma af leynifundi og það gafst ekki tími til að skutla henni heim áður. Ekki vill maður vera of seinn á fund for­set­ans.“ Hann sagði að flokk­arn­ir tveir væru sam­stiga að mörgu leyti og að sam­komu­lag væri þeirra á milli um að standa sam­an að því að koma þeim mál­um sem þau setja á odd­inn á fram­færi í stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræðum"

Samkomulag = stjórnarmyndun =samstíga flokkar

Íhverju liggur misskiliningurinn Jón Steinar ?

Margret Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2017 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband